Pratyahara

Hvernig fer ég að því að slaka á gagnvart áhrifum?

Hefurðu reynt að bara sitja í smá stund og leyfa huganum að fara á reik, að leyfa þær hugsanir sem undir venjulegum kringumstæðum koma þér úr jafnvægi?

 

Það að vera ekki bundin/n áhrifum nefnist Pratyahara í jóga.

Pratyahara er náttúrulegt ferli og í því felst engin áreynsla. Þú reynir ekki að þvinga "truflunina" burt úr huga þér, heldur leyfirðu huganum að vera uppteknum af henni eins lengi og hann þarf – á meðan þú fylgist með því sem gerist.

Ef þú reynir að bægja frá óþægilegum hugsunum þá koma þær alltaf tilbaka. Pratyahara er jógaaðferð sem er aðlöguð vanabundnum viðbrögðum hugans. Hún er nauðsynleg svo að hugurinn geti byrjað að sleppa takinu. Þú hefur sinnt þörfum hugans og þar af leiðandi getur þú byrjað að einbeita þér.

" Lokaðu augunum þar sem þú ert núna og hlustaðu í dálitla stund á öll hljóðin sem eru í kringum þig. Hlustaðu á þau öll - ekki á eitt hljóð í einu – hlustaðu á þau öll í einu..."

Meira um pratyahara: The Pyramid and Pratyahara, á ENSKU >>
Pyramiden og Pratyahara, á DÖNSKU >>

Kafli 9 í bók Swami Janakananda fjallar um pratyahara-aðferðina:
Yoga, Tantra and Meditation in daily Life, á ENSKU >> - Yoga, tantra og meditation i min hverdag, á DÖNSKU >>

Næsta: Slökun í jóga