Svona skolarðu nefið með Yogi's NoseBuddy

Skolaðu könnuna og skeiðina í heitu vatni fyrir fyrstu notkun.

1. Settu sléttfulla mæliskeið af salti í NoseBuddy (4,5 gr.)
Salt in NoseBuddy

Notaðu fínt borðsalt, helst án joðs og kekkjavarnarefna. Hægt er að nota gróft salt en það leysist ekki eins fljótt upp. Sumir hafa ofnæmi fyrir sjávarsalti.

2. Fylltu könnuna með volgu vatni upp að strikinu (0,5 lítrar)
Water in NoseBuddy

Það er ágætt að nota kranavatn en láttu vatnið renna í smástund áður en þú hellir í könnuna. Leystu fyrst upp saltið með smávegis af heitu vatni, bættu síðan við köldu vatni upp að strikinu svo að saltvatnslausnin verði volg.

Ef þú ert einhvers staðar þar sem vatnið er ekki drykkjarhæft eða í því er mikið af klór, sjóddu þá vatnið fyrst og láttu það standa þangað til það er orðið volgt.

Þegar þú ert með þurrar nasaholur, t.d. eftir langa flugferð, geturðu bætt í vatnið einum dropa af jurtaolíu (möndluolía er góð).

3. Hrærðu í lausninni svo að saltið leysist alveg upp

Vatnið hefur nú sama saltstyrk og frumur líkamans (jafnþrýstin lausn), með 0,9% saltmagn.

Rétt saltmagn og rétt hitastig gerir skolunina þægilega.

4. Skolaðu nefið
Cleanse the nose with Yogi's Nosebuddy

Stattu yfir vaskinum með könnuna í hendi þér. Settu stútinn þétt upp í aðra nösina. Hallaðu þér fram á við. Andaðu rólega í gegnum opinn munn og hallaðu höfðinu aðeins til hliðar og fram á við, með höku að brjósti og kannan fylgir með. Nú rennur vatnið sjálfkrafa inn í aðra nösina og út um hina.

Þegar helmingurinn af vatninu er kominn í gegn snýttu þér þá létt og varlega (sjá nr. 6 á bls. 3). Helltu síðan afgangnum í gegnum hina nösina.

Ef þú þarft einhvern tíma að skola nefið enn betur þá geturðu hellt fullri könnu í hvora nös.

5. Láttu vatnið leka út
Hang forward so the water runs out

Þegar þú hefur skolað nefið er oft smá vatn eftir uppi í nefgöngunum. Beygðu þig alveg fram á við og láttu höfuð og búk hanga laust í smá stund.

Eða ef þú þekkir jógastöðurnar trúðinn eða höfuðstöðu* er gott að vera nokkrar mínútur í annarri hvorri þeirra.

6. Snýting
Blow the nose

Snýttu þér varlega – aðra nösina í einu. Afar léttar og stuttar en margar snýtingar.

Gott er að ljúka þessu með 7).

7. Físibelgurinn
Dry the nose with the breahting exercice "The Blacksmiths Bellows" (Bastrika)

Sittu með beint bak og hægri hendi eins og á mynd 7.

Athugaðu í hvorri nösinni er meira loft, lokaðu hinni nösinni með þumalfingri eða baugfingri.

Andaðu hratt inn og út 20 sinnum – afar stuttar og léttar inn– og útandanir gegnum opnu nösina. Andaðu síðan djúpt að þér og haltu andanum inni með því að halda um nefið og loka báðum nösum. Þú finnur hvernig loftið þrýstir aðeins á inni í nefi, og heldur andanum inni þægilega lengi. Ef þú hefur nefstíflu haltu þá andanum lengur. Andaðu síðan hægt út um sömu nösina. Endurtaktu þetta með hinni nösinni og gerðu þrjár umferðir með hvorri nös.

Til að gera neti sem áhrifaríkast eða ef þú þjáist af nefstíflu, skútabólgu, ofnæmi eða astma gerðu þá alltaf öndunaræfinguna físibelginn á eftir nefskoluninni.

*) Nánari upplýsingar um jógastöðurnar trúðinn og höfuðstöðu, og öndunaræfinguna físibelginn, eru í bókinni Yoga, Tantra and Meditation in Daily Life ” eftir Swami Janakananda, (á dönsku: Yoga, tantra og meditation i min hverdag, Bogans forlag) eða hafðu samband við jógakennara frá Skandinavíska yoga og hugleiðsluskólanum, sjá baksíðuna.

Góð ráð

Ef vatnið rennur of hægt eða kemur ekki út um hina nösina

a) Ef til vill þrýstirðu stútnum of þétt að eða of skáhallt inn svo að gatið lokast og vatnið kemst ekki í gegn.

b) Ef stútnum er ekki þrýst nógu vel að þá getur verið að vatnið renni út um sömu nös.

c) Ef maður er kvefaður og stíflaður og vatnið rennur ekki í gegn undir eins þá bíður maður í nokkrar mínútur með stútinn í nösinni og vatnið byrjar smám saman að leysa upp fyrirstöðuna. Svo snýtir maður sér varlega úr hvorri nös og setur stútinn upp í hina nösina og endurtekur, ef með þarf, nokkrum sinnum. Þá kemur að því að vatnið fer að leka í gegn, fyrst í dropatali og svo byrjar það að streyma. Snýttu þér sérstaklega varlega ef þú ert kvefuð/aður því þá er slímhúðin viðkvæm.

Hin sérstæða lögun á NoseBuddy–könnunni; rúmmál könnunnar og hin langa pípa, gefur gott vatnsrennsli. Það þýðir að þú getur næstum alltaf skolað nefið, þrátt fyrir stíflu í byrjun.

Ef vatnið fer niður í kok

Það getur gerst einstöku sinnum að eilítið vatn renni niður í kok, sérstaklega ef nefið er stíflað. Það gerir ekkert til. En ef það fer mikið af vatni niður í kok og munn beygðu þá höfuðið meira fram á við, með hökuna niður að bringu. Mundu líka að anda í gegnum munninn og að kyngja ekki.

Ef mann svíður

Það er kannski of mikið eða of lítið af salti í vatninu.
Eða ef til vill hefur saltið ekki leyst alveg upp. Mældu alltaf saltmagnið með mæliskeiðinni og fylltu alltaf könnuna með vatni upp að strikinu. Hrærðu vandlega og vertu viss um að saltið leysist upp áður en þú skolar nefið (sjá 1–3).

Það er til margs konar salt, með mismunandi eðlisþyngd. Stundum getur þurft að fylla mæliskeiðina aðeins meir en sléttfulla. Lausnin er rétt þegar hún bragðast eins og tárin og þegar hún er volg, þ.e. hefur hitastig líkamans (aðeins heitari en húðin á fingri þínum).

Hve oft skolar maður nefið?

Það er gott að skola einu sinni eða tvisvar á dag (að morgni/að kvöldi).

Þú getur líka skolað þegar þú þarfnast þess sérstaklega, t.d. ef þú ert að fá kvef, ert stífluð/aður, hefur skútabólgu, astma, heymæði – eða ef þú hefur verið í rykugu, reykfylltu eða menguðu umhverfi. Ef þú hrýtur, skolaðu þá nefið áður en þú ferð í háttinn.

Hin jákvæðu áhrif af nefskolun styrkjast þegar maður gerir neti reglulega, á hverjum degi.

Hvernig þrífur maður könnuna?

Skolaðu könnuna og skeiðina í heitu vatni fyrir og eftir notkun og láttu sjálfþorna. Þú getur þvegið NoseBuddy einstöku sinnum, ef með þarf, upp úr mildum uppþvottalegi. Lánaðu ekki öðrum könnuna þína, hafðu hana bara fyrir þig (eins og tannburstann þinn).

Yogi‘s NoseBuddy er endingargóð og hentug gæðavara. Farðu eftir leiðbeiningunum í þessu hefti – og þú munt njóta NoseBuddy–könnunnar þinnar í mörg, mörg ár.