Hvers vegna skolar maður nefið?
Nefskolun , einnig kallað neti, er auðveld og áhrifarík jógaaðferð. Maður skolar nefið með hreinu, volgu „lífeðlisfræðilegu“ saltvatni, þ.e.a.s. vatni með 0,9% saltmagni.
Mælt er með neti við kvillum í nefi, kinn– og ennisholum, til að auðvelda öndun í gegnum nefið, til að auka skýrleika í hugsun og til að undirbúa sig fyrir jóga og hugleiðslu.
Margir gera neti á morgnana til að byrja daginn á upplífgandi og hressandi hátt. Sumum þykir gott að skola nefið þegar þeir koma heim úr vinnunni, sérstaklega ef þeir vinna í rykugu umhverfi.
Þessi einfalda aðferð hreinsar og vætir nefgöngin og örvar virkni slímhúðarinnar. Á yfirborði slímhúðarinnar eru bifhár, í nefi, kinn– og ennisholum, barka og lungnapípu – og í kokhlust. Bifhárin sjá um að halda nefi, koki og barka hreinum. Þau fjarlægja óhreinindi með „sópandi“ hreyfingu.
Nefskolun örvar bifhár öndunarveganna svo að ryk, frjóduft og bakteríur geta borist út eins og á færibandi. Þannig sér neti um að halda hreinsunar- og varnarkerfi öndunarveganna í góðu formi.
Þetta er ein af ástæðunum fyrir því að nefskolun getur dregið úr eða komið í veg fyrir kvef, skútabólgu, astma, ofnæmi og sýkingu í öndunarvegi og neikvæð áhrif loftmengunar.
Í þurru innanhússlofti
verður slímhúðin í nefi þurr og þar af leiðandi dregur úr virkni bifháranna. Neti getur endurskapað hið eðlilega rakastig slímhúðarinnar og dempar einnig bólgur í slímhúðinni, sem gerir það að verkum að maður verður ekki eins auðveldlega stíflaður.
Í meðgöngu er þess vegna gott ráð að skola nefið – og líka ef maður hrýtur.
Nefskolun örvar svæðið í kringum augun og ennið. Hún getur losað um spennuhöfuðverk, skerpt sjónina og lyktarskynið – og hjálpað til að hætta að reykja.
Andaðu í gegnum nefið! Loftið hreinsast og fær betra raka– og hitastig þegar þú andar í gegnum nefið. Nútíma vísindi hafa sýnt fram á að neföndun eykur súrefnisupptöku blóðsins. Gasið köfnunarefnisoxíð (NO), sem myndast meðal annars í nef–, kinn– og ennisholum, fylgir með loftinu niður í lungun og víkkar út æðarnar og það gerir það að verkum að súrefnisupptakan eykst.
Nefskolun er þekkt víða um heim sem gamalt og gott húsráð gegn kvefi. Í byrjun tuttugustu aldar var t.d. hægt að kaupa sérstakar nefskolunarkönnur og sprautur í apótekum Norður–Evrópu en síðan „hvarf“ aðferðin þangað til í kringum árið 1970 þegar farið var að nota hana aftur vegna aukins áhuga á jóga.
Nú til dags hafa margir læknar uppgötvað nytsemi nefskolunar og mæla með þessari áhrifaríku og hliðarverkanalausu aðferð í stað nefdropa og nefúða.
„Nefskolun eykur almennt heilbrigði. Því reglubundnar sem þú skolar, því meiri og varanlegri eru áhrifin.“ (Prof. Thomas Schmidt MD, Læknaháskólanum í Hannover).
Lestu meira um nefskolun í Bindu no 3 (á ensku).