“Hin mystíska reynsla er sú sama í öllum menningum, á öllum tímum, alls staðar í heiminum. Hún byggist á leit, á aðferðum og á sannri upplifun.” (Swami Janakananda)
Tímarit um jóga, tantra og hugleiðslu
og tengsl jóga við vísindi, listir og mannlegan þroska.
Innihald Bindu er meðal annars:
- Greinar um jóga og hugleiðslu, í skapandi starfi, í félagslegu samhengi og sem meðferðartæki.
- Vísindalegar greinar og rannsóknir á lífeðlisfræðilegum áhrifum jóga og hugleiðslu.
- Uppruni jóga og hugleiðslu, aðferðir þekktar og stundaðar annars staðar en í Asíu síðustu árþúsundin.
- Lýsing á hinni lifandi hefð eins og við þekkjum hana frá Indlandi. Jógastöður og -æfingar og áhrif þeirra.
- Leiðsögn og innblástur; um hinar ýmsu aðferðir í jóga, öndun, slökun og hugleiðslu - og leiðir til að komast í hugleiðsluástandið. Um hugleiðsluaðferðirnar Innri kyrrð og Kriya jóga.
Bindu er skrifað, ritstýrt og hannað af fólki sem hefur stundað jóga og hugleiðslu í mörg ár. Tímaritð hefur verið gefið út, með nokkrum hléum, síðan 1971. Það hefur komið út á ensku, þýsku, sænsku og dönsku.
Ath: Bindu-tölublöðin eru númeruð á mismunandi hátt, eftir því á hvaða tungumáli þau eru.
Nú munu nýjar greinar og eldri, endurskoðaðar greinar úr Bindu birtast hér á vefnum og gert er hlé á pappírsútgáfunni um sinn.
Nýjustu birtingar:
*
September 2008 - á dönsku - Bindu nr 14, sem inniheldur meðal annars greinina "Du må lade dig sluge helt"; viðtal við málarann Sohan Qadri.
*
September 2008 - á dönsku - Bindu nr 17, sem inniheldur meðal annars greinarnar "Oplevelsen" af Swami Janakananda og "Yogini" af Sohan Qadri.
*
Valdar greinar úr Bindu
Smelltu á "Tölublöð Bindu" í valmyndinni til vinstri til að lesa greinar í Bindu.
T.d. greinina um Kriya jóga í síðasta tölublaði Bindu:
Kriya Yoga V
On initiating and being initiated into advanced Kriya Yoga
by Swami Janakananda
Maybe one might learn a preliminary technique from Kriya Yoga over a weekend, but the great Tantric Kriya Yoga demands much more - both of the teacher and of the student.