Slökun í jóga
“Er hægt að læra að slaka á?”
“Hmmm, Það er hægt að læra að nota aðferð sem framkallar slökunina.”
Í jóga eru margar leiðir til slökunar. Slökunarástandið hefur jákvæð áhrif á öndunina, vöðvana, blóðrásina, heilann, augun – allan líkamann.
Yoga Nidra (djúpslökunin jóga nidra) er byggð upp þannig að hún hentar bæði fyrir byrjendur og lengra komna. Þú liggur á bakinu og fylgir leiðbeiningunum. Hugur og líkami komast í jafnvægi og þú færð endurnærandi hvíld.
Yoga Nidra gefur hámarksslökun á lágmarkstíma og hefur hjálpað mörgum sem hafa átt við svefnleysi að stríða.
" Hálftíma Yoga Nidra jafngildir fjögurra tíma svefni." (Swami Satyananda).
Yoga Nidra er kerfisbundin aðferð til að þróa með sér slökunarhæfileikann og innri árvekni. Hún er góður undirbúningur fyrir hugleiðslu.
Það er hægt að læra Yoga Nidra af geisladiski eða í beinni kennslu og seinna getur maður líka leiðbeint sjálfri/sjálfum þér í hljóði. Það er gott að gera Yoga Nidra þegar maður er útkeyrður og spenntur. En það er einnig gagnlegt þegar maður er þreyttur og leiður eftir iðjuleysi.
Ítarleg yfirferð yfir innihald og uppbyggingu Yoga Nidra og vísindalegar rannsóknir á áhrifum Yoga Nidra: Bindu á ENSKU >> - á DÖNSKU >>
Um geisladiskinn: “Experience Yoga Nidra”, á ENSKU >> - á DÖNSKU >>
Næsta : Einbeiting >>