Önduræfingarnar í jóga

Öll þekkjum við vöðvaspennu. Eins getur myndast spennuástand í öndun okkar. Öndunin verður óregluleg, við bregðumst stundum við ómeðvitað og þegar það er orðið að vana tökum við ekki eftir því. Í vöðvum líkamans og í öndunarferlinu situr sú lífsreynsla sem hefur sett spor í undirmeðvitundina.

Nadi Shodana

Lokaðu fyrst hægri nös með þumalfingri og andaðu inn um vinstri, alveg inn, lokaðu svo vinstri nös með baugfingri, opnaðu hægri og andaðu út, andaðu síðan inn um hægri nös aftur og út um vinstri... Fimm umferðir
Andaðu hægt, djúpt og hljóðlaust, án þess að taka hlé á milli umferðanna...

Það geta myndast stíflur og hindranir í orkubrautum líkamans. Þessar hömlur sljóvga skynfærin og hindra skýra hugsun og ríkt tilfinningalíf. Ef orkudreifingin um líkamann er í ólagi, þá finnum við fyrir orkuleysi.

Þegar við stundum öndunaræfingar reglulega getum við smám saman losað um þessar spennur og hömlur, og það gefur okkur kraftinn til að takast á við verkefni eða vandamál sem við áður stóðum magnlaus og ráðþrota gagnvart eða til að koma okkur upp úr þunglyndi.

Hann hefur mikla útgeislun” segjum við. Tungumálið sýnir okkur að það fjallar um orku; um að hafa sterka nærveru, að þurfa hvorki að gera lítið eða mikið úr sér, að vera skapandi og móttækileg/ur, um hæfileikann að upplifa og miðla.

Meira um öndunaræfingar í Bindu, ENSKU >> - á DÖNSKU >>

Næsta: Múdrur >>