Jógastöður

Margar jógastöður, asana, eru nefndar eftir dýrum, þær lýsa því hvernig dýrin teygja sig, hvernig þau halda líkamanum sveigjanlegum og hraustum.

Staðan á myndinni að ofan heitir Trúðurinn. Það er auðvelt að læra hana með réttri leiðsögn. Trúðurinn er jafnvægisstaða og góður undirbúningur fyrir höfuðstöðu.

Í jóga eru allir líkamshlutar teknir fyrir. Sérhver jógastaða hefur sínu hlutverki að gegna og hefur sín sérstöku áhrif; léttar æfingar, sem bara eftir stutta þjálfun veita vellíðan og áhrifaríkari æfingar og stöður.

Regluleg jógaiðkun kemur í veg fyrir stirðleika og örvar blóðstreymið um líkamann. Hún örvar starfsemi líffæra og innkirtla og styrkir taugakerfi, hjarta og þarma.

Kötturinn teygir úr sér af eðlishvöt. Í jóga lærum við að gera það meðvitað. Sú reynsla sem jóga gefur okkur hvetur okkur til að halda áfram - og við iðkum það sem við uppgötvum að hefur jákvæð áhrif á líf okkar.

Meira um jógastöður í Bindu, á ENSKU >>á DÖNSKU >>

Næsta: Öndunaræfingar >>