Leiðbeinendurnir
”Tantrísku jóga- og hugleiðsluaðferðirnar hafa tvískipt áhrif. Þær hjálpa okkur í að fara í uppgötvunarferð um okkur sjálf, að öðlast innri kyrrð – og – að vera athafnamikil og skapandi út á við, í samveru annarra.” (Swami Janakananda)
Swami Janakananda
er pranayama- og hugleiðslumeistari. Hann er líflegur fyrirlesari og eftirsóttur hugleiðslukennari. Hann fæddist í Danmörku árið 1939. Á barnsaldri lærði hann nokkrar jógaæfingar og 19 ára gamall gerði hann sér ljóst að hann vildi verða jógi. Sú ósk rættist ekki þegar í stað, en á næstu árum byrjaði hann, með miklum ákafa og einlægni, að kanna áhrifin af jóganu á sjálfum sér.
Á þeim árum sem hann vann við látbragðsleik og leikstjórn í Kaupmannahöfn stundaði hann jóga klukkutímum saman dag hvern og varð smám saman meistari í öndunaræfingum (pranayama).
Árið 1968 mætti hann kennara sínum, Swami Satyananda, í Kaupmannahöfn og fylgdi honum til Indlands. Eftir nokkra mánaða dvöl í ashraminu ákvað hann að vera áfram þar og á tímabili ferðaðist hann um Indland með kennara sínum.
Þegar Swami Janakananda kom heim til Danmerkur, sumarið 1970, stofnaði hann Skandinavíska yoga og hugleiðsluskólann. Fyrsti skólinn í Kaupmannahöfn stækkaði óðum og fleiri deildir sáu dagsins ljós. Hann hefur, ásamt kennurunum sem hann hefur þjálfað, haft mikil áhrif á útbreiðslu jóga og hugleiðslu í Norður-Evrópu og víðar. Þau eiga að þakka daglegri ástundun hugleiðslu, sérstaklega - Kriya Yoga og Karma Yoga - og hæfileikann að takmarka sig á skapandi hátt við eina hefð, hina ríku tantrísku hefð.
Swami Janakananda býr rétt hjá alþjóðlega yogasetrinu Haa í Suður-Svíþjóð þar sem hann, auk þess að kenna hugleiðslu og þjálfa jógakennara, hefur átt samstarf við ýmsa vísindamenn sem rannsaka áhrifin af jóga og hugleiðslu. Í Haa kennir hann meðal annars Kriya Yoga á hverju ári, á eins mánaða og 3-mánaða námskeiðunum.
Hann er mörgum innblástur með því að kenna á skýran hátt hvernig jógaaðferðir sem rista djúpt geta verið verkfæri okkar í daglegu lífi. Það sem gerir kennslu hans svo sérstaka er að hann notar augnablikið hér og nú, og tekur þér eins og þú ert. Þú þarft ekki að vera öðruvísi en þú ert, til að geta iðkað jóga og hugleiðslu.
Bók hans Yoga, Tantra and Meditation in Daily Life hefur verið gefin út á níu tungumálum og margir njóta einnig djúpslökunar hans Experience Yoga Nidra . Hann skrifar greinar fyrir tímaritið Bindu .
Swami Janakananda hefur ferðast mikið og haldið námskeið og fyrirlestra, meðal annars í Suður-Ameríku, Englandi, Þýskalandi, Frakklandi, Ástralíu, Nýja-Sjálandi, Bandaríkjunum, Indlandi og á Íslandi.
Dagskrá Swami Janakananda; Námskeið og fyrirlestrar á Norðurlöndum og víðar.
Ma Sita Savitri
er fædd í Reykjavík 1958. Áhugi hennar fyrir jóga og hugleiðslu vaknaði snemma. Sem barn og unglingur upplifði hún oft hvernig náin tengsl við náttúruna getur opnað dyrnar að hugleiðsluástandinu, að vitundarvíkkun.
heitur mosinn
og ég endilöng,
bráðnum saman...
fuglinn og ég, á tindinum,
upplifum sannleikann...
saman
Ma Sita lærði jóga á þeim árum er hún stundaði nám við Háskóla Íslands.
" Ég fann engan sem gat kennt mér góða hugleiðsluaðferð á Íslandi. Þegar ég flutti til Kaupmannahafnar 1982 fór ég á fyrsta "hugleiðslu"námskeiðið sem ég rakst á. Þar hoppuðu þau um allsnakin og stundu hátt, það hafði sín áhrif, en hugleiðsla var það ekki, svo ég mætti bara einu sinni. Ég hafði gert mér allt aðrar vonir…
Ég kynntist Skandinavíska yoga og hugleiðsluskólanum 1983. Aðferðirnar voru áhrifamiklar og kennsluhátturinn og grundvallarviðhorf kennaranna þar féll mér vel í geð"
Ma Sita hefur nú 24 ára reynslu sem leiðbeinandi í jóga og hugleiðslu. Hún hélt sitt fyrsta námskeið á Íslandi árið 1985.
" Ég stóð á höfði á Lækjartorgi til að auglýsa námskeiðin og fékk skemmtilegar athugasemdir frá vegfarendum. Á þeim tíma var kennd jógaleikfimi á Íslandi, en jógakerfið í heild sinni var minna þekkt.
Ma Sita kennir mest í Svíþjóð, meðal annars á hinu árlega 3-mánaða sadhananámskeiði en hún ferðast einnig mikið með Swami Janakananda þegar þau halda námskeið og fyrirlestra víða um heim.
" Jóga er hagnýtt og vísindalegt kerfi sem gerir mér kleift að vera meira ég sjálf, verða meðvituð um alla mig, mitt innsta eðli og tengsl mín við umheiminn. Að uppgötva þá orku sem í mér býr og smám saman ná tökum á henni. Yoga þýðir heild. Að vera heil og í innra jafnvægi eykur sjálfstæðið og sköpunargleðina. Aðferðirnar eru ekkert í sjálfu sér. Það eru áhrifin af þeim sem gefa kennslunni næringu og sem hvetja mig til að halda áfram að hugleiða og iðka jóga reglulega." (Ma Sita)