Yoga, slökun og hugleiðsla á Íslandi - Námskeið síðastliðinna ára

Árið 2007

Hálfsdags námskeið 16. júní

- Í jóga felst miklu meira en bara líkamsrækt -

Staður :
Norræna húsið í Reykjavík.

Stund :
Laugardagurinn 16. júní, kl. 14.00-18.00.

Innihald :
Djúpslökun, fyrirlestur, jóga og hugleiðsla.

Bæði fyrir:
Byrjendur og lengra komna.

Leiðbeinendur :
Swami Janakananda og Ma Sita.

Verð :
6000 kr.

Tungumál :
Kennslan fer fram á íslensku og ensku.

Taktu með þér :
Vattteppi/mottu, þunna ábreiðu og púða.

Fatnaður :
Þægilegur og mjúkur, ekkert sem þrengir að.

Aðferðirnar sem þú lærir á námskeiðinu geta komið þér að góðum notum í daglegu lífi.

Námskeiðið inniheldur meðal annars:

Hugleiðsluna "Innri kyrrð", léttar jógaæfingar og stöður, æfingar sem auðvelda þér að sitja í góðri hugleiðslustellingu, öndun, undirstöðuna í "Uppsrettu orkunnar" og djúpslökunina "Yoga Nidra".

Í fyrirlestrinum " Í jóga felst miklu meira en bara líkamsrækt", mun Swami Janakananda meðal annars fjalla um eftirfarandi efni:

Er eitthvað sem kemur í veg fyrir vellíðan okkar? Hvað er til bóta?

Hvað er það sem gerir hið upprunalega jóga svo einstætt?

Hin djúpu áhrif jógaiðkunar.

Spurningar og svör

Að lokum stýrir Swami Janakananda hugleiðslunni "Innri kyrrð".

Árið 2002

Eins dags námskeið:

Hugleiðsla - Jóga - Djúpslökun
kl. 9-18

”Satsang” og hugleiðsla með Swami Janakananda
kl. 20 – 22

The balance between “BEING” and “BECOMING”

Swami Janakananda svarar spurningum áheyrenda um jóga, tantra og hugleiðslu. Kvöldinu lýkur með hugleiðslu. (Fer fram á ensku).

Árið 1999

5-daga námskeið:
Hugleiðslan Uppspretta orkunnar
og djúpslökunin Yoga Nidra

Helgarnámskeið
í jóga og hugleiðslu

Þarmaskolunarnámskeið