Crowalk

"Okkur var leiðbeint hægt og rólegainn í jógaheiminn; við lærðum líkams- og öndunaræfingar, slökun og hugleiðslu. Þegar ég fór í háttinn fyrsta kvöldið færðist kyrrð yfir mig og ég svaf vært alla nóttina - það var velkomin "nýjung", ég hafði lengi þjáðst af svefnleysi.

Jóganámskeiðið hefur gert það að verkum að ég gef mér tíma til að æfa jóga og hugleiðslu heima á hverjum morgni. Mér líður betur, ég hef meira innra jafnvægi og er einbeittari. Það er ekkert dularfullt við það. Nei, ekkert er eðlilegra finnst mér. Líkamsæfingarnar gefa mér meiri líkamsvitund. Ég öðlast bæði styrk og mýkt. Lungnaþolið hefur aukist eftir að ég byrjaði á öndunaræfingum og öndun mín er eðlilegri. Hugleiðsluæfingarnar eru undursamlegar - nauðsynlegar fyrir okkur sem lifum í hraða, streitu og kröfum nútímans." (Nemandi, eftir helgarnámskeið í jóga og hugleiðslu).

. . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . .

Stutt lýsing á þeim aðferðum sem við höfum kennt á Íslandi

Jógastöður (Asana)
Við kennum fyrst léttar æfingar sem verka á vöðva, liði og blóðrás og sem koma á líkamlegu jafnvægi og vellíðan. Smám saman náum við til klassísku jógastellinganna. Líkaminn verður mýkri og sterkari og hugurinn opnari og móttækilegri fyrir hugleiðsluástandinu.
Smelltu á: Meira um jógastöður

Pranayama

Öndunaræfingar (Pranayama)
fjarlægja tilfinningastreitu á mildan en áhrifaríkan hátt og tengslin milli heilahvelanna verða betri. Hugurinn skýrist. Öndunin er í beinu sambandi við taugakerfið og speglar líkams- og hugarástand okkar.

Pranayama losar um stíflur í orkuflæðinu og framkallar heilnæmt orkusvið í líkamanum og umhverfis hann.
Smelltu á: Meira um öndunaræfingar

Einbeitingaræfingar (Tratak)
Tratak á kertaljós er gott fyrir augun en þjálfar einnig þann hæfileika að sjá fyrir sér hluti og að uppgötva það sem birtist af sjálfu sér á bak við lokuð augu.
Smelltu á: Meira um tratak

. . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . .

Gefðu þér tíma - fyrir slökun og hugleiðslu - til að bara vera

. . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . .

Við reglulega ástundun hættir þú smám saman að vera þræll líkama þíns og huga. Þú uppgötvar, að líkami og hugur eru verkfæri þín, að þú öðlast æ meiri innri ró - einnig í annríki dagsins. Og það gerir það að verkum, að þú getur gert meira fyrir aðra.

En hvað er handan hugans?
Hver er ég eiginlega?

Í djúpslökuninni og í hugleiðslunni hefurðu tækifæri til að uppgötva það og upplifa.

Meditation

Uppspretta orkunnar
er einföld og áhrifarík hugleiðsluaðferð úr hinni tantrísku Kriya Yoga hefð. Með hugleiðslunni styrkir þú orkusvið þitt og þú verður næmari, upplifir meira og skýrara það sem gerist í þér og umhverfis þig.

Í hugleiðslunni er notuð sérstök öndunaraðferð, sálaröndun (Ujjayi), öndunarmantran og tengisvæði orkustöðvanna.

Spennuástand hverfur og orkuflæðið eykst. Smám saman kyrrist hugurinn...

Innri kyrrð (Antar Mauna)
er tantrísk "athyglis"hugleiðsla. Hvað sem þú gerir annars í lífi þínu þá myndar þessi hugleiðsla traustan grundvöll.

Er stundum eitthvað sem truflar þig?
Utanaðkomandi áhrif? Hugsanir eða áhyggjur?
Ekkert þarf að vera öðruvísi áður en þú byrjar hugleiðsluna.

Í fyrsta stiginu í "Innri kyrrð", upplifirðu umhverfi þitt á sérstakan hátt og sættir þig við aðstæðurnar, eins og þær eru.

Meditation

Síðan upplifirðu huga þinn eins og hann er þegar þú reynir ekki að stjórna honum. Þú slakar á öllum kröfum.
Innihald hugans fær að streyma hömlulaust.
Þannig losast um hugsanir og ástönd - og hugurinn kyrrist smám saman.

Kjarninn í hugleiðslunni er umbreytandi reynsla af innri kyrrð - þaðan sem þú upplifir allt.

Smelltu á: Meira um hugleiðslu

Yoga Nidra
er einstök djúpslökun byggð á tantrísku slökunarhefðinni. Hún gefur heild þinni, líkama og huga, endurnærandi hvíld. Þegar við getum ekki slakað á eftir streitu eða stress svíkja taugarnar okkur og við verðum móttækilegri fyrir ýmsum líkamlegum kvillum. Það er hægt að rjúfa vítahringinn með því að stunda Yoga Nidra reglulega. Vísindamenn nútímans hafa sannað það sem jógarnir hafa vitað í þúsundir ára – meðal annars að djúpslökun styrkir ónæmiskerfið.
Maður liggur á bakinu, hreyfingarlaus, með lokuð augu, og fylgir leiðbeiningunum. Seinna meir er hægt að læra Yoga Nidra utan að og leiðbeina sér í hljóði. Þessi djúpslökun gefur huga og líkama þá hvíld sem svefninn veitir sjaldan.
Smelltu á: Margt fróðlegt um Yoga Nidra á ENSKU - á DÖNSKU

Shavasana

Hreinsunaraðferðir úr Hatha Yoga
Þarmaskolun ( shankaprakshalana), magaskolun ( kunjal) og nefskolun ( neti) eru aðferðir sem gefa þér besta innvortis bað sem hægt er að fá.

Hatha Yoga byggist á þekkingunni um það hvernig hægt er að samræma starfsemi líffæra og innkirtla og koma jafnvægi á líkamsstarfsemina og á þann hátt skapa góðan grundvöll fyrir hugarástandið.

Það eru ekki bara indverskir jógar og jógínur sem þekkja hollustu þess að skola líkamann að innan með saltvatni. Hér í Norðurálfu er það gamalt og gott húsráð að skola nef, háls og maga með sjóvatni.

Margir læknar mæla með nefskolun.

Áhugavert um nefskolun, smelltu á:

"Hvernig skolar maður nefið?" ENSKU - á DÖNSKU

"Grein um nefskolun í tímaritinu Bindu á ENSKU - á DÖNSKU

Þarmaskolunaraðferðin
Með því að drekka heitt og léttsaltað vatn og gera fjórar auðveldar líkamsæfingar er meltingarvegurinn skolaður frá munni til endaþarms. Á mildan hátt fá maginn og þarmarnir fullkomna hreinsun og hvíld. Í tíu daga á eftir er mataræðið einfalt og létt grænmetisfæði. Það eru ekki bara þarmarnir og líffærin sem hreinsast og endurnærast, heldur allur líkaminn og starfsemi hans. Maður uppgötvar að líkami og hugur eru í innbyrðis tengslum, hlutar af sömu heild. Úrgangs- og eiturefni og spennuástönd hverfa. Öll skynfærin skerpast og maður verður léttari á sér - Almenn vellíðan segir til sín.

six glasses

Með hatha yoga hreinsunaraðferðunum er hægt að koma í veg fyrir myndun ýmissa kvilla - og ef skaðinn er skeður geta þær bætt heilsufarið. Aðferðirnar eru meðal annars notaðar við streitu, ofnæmi, astma, höfuðverk, sykursýki og maga-, þarma- og meltingartruflunum.

Það er gott að gera þarmaskolun einu sinni eða tvisvar á ári og þá undir handleiðslu jógakennara sem sjálf/ur hefur reynslu af aðferðinni og gerþekkir hana. Best er að gera það í hópi. Það myndast góður andi og í því er stuðningur.

Daginn áður
Þú borðar venjulegan hádegismat, en um kvöldmatarleytið færðu þér bara einn eð tvo ávexti og vatn eða jurtate. Ef þú drekkur kaffi eða svart te þá er best að hætta 5-6 dögum fyrir skolunina. Eða trappa niður hægt og rólega ef þú drekkur mikið. Mundu að kaupa inn grænmeti fyrir helgina.

Þarmaskolunardagurinn
Þú mætir að morgni dags á fastandi maga. Kennarinn útskýrir aðferðina og svo byrjum við. Þú drekkur fullt glas af heitu léttsöltuðu vatni. Síðan gerirðu fimm líkamsæfingar. Saltið og æfingarnar gera það að verkum að vatnið rennur fljótt í gegnum meltingarveginn. Þú færð annað vatnsglas og gerir æfingarnar, þriðja glasið og æfingar o.s.frv. Þó að þörfin fyrir að fara á klósettið komi fyrr, reyndu þá að bíða þangað til eftir sjötta glasið og æfingar. Eftir það ferðu á klósettið eftir hvert glas og æfingar. Þannig heldurðu áfram þangað til að það sem kemur út um endaþarminn er jafn tært og vatnið sem þú drekkur. Þú drekkur minnst 16 glös (4 lítra), en sumir þurfa aðeins meir. Vatnið rennur beint í gegnum þarmana. Það fer ekki í gegnum nýrun vegna þess að saltupplausnin er sú sama sem er í líkamsvökvanum.

Þegar þarmarnir eru orðnir hreinir skolarðu magasekkinn með volgu saltvatni. Þú drekkur u.þ.b. einn og hálfan líter í einum teig og kastar því upp strax á eftir. Eftir magaskolunina gerirðu æfingarnar fimm í síðasta skipti og skolar síðan nefið með sérstakri nefskolunarkönnu. Síðan leggurðu þig og hvílir í 45 mínútur. Þar á eftir færðu þarmaskolunarmáltíðina; hrísgrjón með hreinsuðu smjöri. Smjörið smyr og verndar þarmana og grjónin setja starfsemi þeirra í gang.

Taktu því með ró það sem eftir er dagsins.

Mataræðið á eftir
Skráðu þig bara á þarmaskolunarnámskeið ef þú hefur í hyggju að halda mataræðið. Á námskeiðinu færðu leiðbeiningar og lista yfir það sem þú mátt borða og hvað þér ber að varast í tíu daga á eftir. Fæðið er mestmegnis soðið/gufusoðið/ofnbakað grænmeti, soðnar kornvörur, baunir og linsubaunir. Lyf eru ekki tekin nema þau séu lífsnauðsynleg. Ef þú átt við sjúkdóm að stríða og ert á lífsnauðsynlegum lyfjum, talaðu þá við leiðbeinandann á námskeiðinu.

Eftir tíu daga er fæðið frjálst - en ef þú vilt efla áhrifin af skoluninni og fá meira út úr henni borðaðu þá hvorki kjöt, fisk né egg í 30 daga þar á eftir.

Við höldum sjaldan þarmaskolunarnámskeið á Íslandi. Á alþjóðlega yogasetrinu Haa gerum við þarmaskolun þriðja eða fjórða daginn á hverju námskeiði. Eða ef þú átt leið um Stokkhólm eða Kaupmannahöfn þá eru skólarnir þar með þarmaskolunardaga reglulega.

Sjá nánar um jógahreinsun, smelltu hér >>

Indian Madhubani picture from Mithila